Skilmálar Farver

Skilmálar

Farver málningarverzlun selur málningu, málningarvörur og málningarverkfæri.
Þegar að þú er í framkvæmdum þá ert þú velkomin/nn að kíkja til okkar í verzlunina og einnig hægt að hringja eða senda okkur skilaboð á samfélagsmiðlum og panta/greiða vörur þar í gegn.
 
 

Verð

Öll verð á vefsíðu Farver eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð á vefsíðu geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga, gengisbreytinga eða innsláttavillna.
 

Greiðslumöguleikar

Hægt er að greiða með símgreiðslu eða banka millifærslu ef viðkomandi hefur samband í gegnum samfélagsmiðla eða síma.
 

Upplýsingar um seljanda

Seljandi er Farver málningarvörur ehf., kt. 580221-0410, aðsetur Flatahraun 23, 220 Hafnarfirði. 
 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
  • Varan skal vera ónotuð.
  • Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
  • Varan eða málning er ekki blönduð í sérlit
  • Vara þarf að vera í upprunalegum og óskemmdum umbúðum.
  • Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
  • 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

ATHUGIÐ að ekki er hægt að skila málningu sem hefur verið sérblönduð í lit eftir óskum viðskiptavina.

Endursenda má vöru til Farver að Flatahrauni 23, 220 Hafnarfirði.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
Að öðru leyti vísast til laga um húsgöngu- og fjarsölusamninga nr. 46/2000 og laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Senda beiðni fyrir skil á vöru – Setja inn link á form til að skila

 

Höfundaréttur og vörumerki

Allur texti, grafík, lógó, myndir og allt efni á www.farver.is eru eign Farver ehf. og er öll afritun og endurdreifing bönnuð nema með skriflegu leyfi frá Farver.
 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
 

Hafa samband

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið litir@farver.is , í síma 5117700 og einnig á samfélagsmiðlum ef einhverjar spurningar vakna.